Ágætur afli við lok kvótaárs

Deila:

Vestmannaeyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa komið að landi með ágætan afla nú þegar kvótaárið er að renna sitt skeið. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Bergey landaði tæpum 70 tonnum í Vestmannaeyjum á miðvikudag og Vestmannaey um 56 tonnum í gærmorgun.

Aflinn hjá Bergey var að mestu þorskur. Ragnar Waage Pálmason skipstjóri segir veiðiferðina hafa hafist í Meðallandsbugtinni þar sem tekin voru tvö hol áður en haldið var á Ingólfshöfða. Þaðan lá leiðin í Berufjarðarál þar sem veiði hafði verið ágæt en fór minnkandi.

„Veitt var í Berufjarðarálnum á meðan bjart var en farið út í kanta þegar dimmdi. Nú er verið að kveðja þetta kvótaár og nýtt að ganga í garð og á þessum tímamótum eru menn bara brattir,“ segir Ragnar.

Vestmannaey VE landaði hins vegar um 56 tonnum eftir karfatúr. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir farið hafa verið víða, meðal annars í Sparisjóðinn, á Belgableiðuna, Sneiðina, Háfadýpið, Reynisdýpið og Víkina.

Vestmannaey hafði áður landað fullfermi í Grindavík á sunnudag. Sá afli var að mestu þorskur sem fékkst í Berufjarðarálnum þar sem Birgir segir veiðina hafa verið góða.

„Nú er nýtt kvótaár að ganga í garð og auðvitað eru það alltaf ákveðin tímamót fyrir okkur,“ segir Birgir Þór.

Deila: