Meiri makríll mælist en í fyrra

Deila:

Lífmassavísitala makríls í Norðaustur-Atlantshafi mælist 1,80 milljón tonn í sumar og hækkar um rúm 9% frá síðasta ári. Þetta kemur fram í niðurstöðum sameiginlegs uppsjávarleiðangurs Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna og Dana sem Hafrannsóknastofnun greinir frá.

Útbreiðsla makríls við Ísland var svipuð og í fyrra en þéttleikinn ívið meiri. Mestur þéttleiki mældist austan við landið en enginn makríll mældist vestan eða sunnan Íslands, líkt og verið hefur frá sumrinu 2023. Stærsti hluti stofnsins var í Noregshafi.

Aukning mældist einnig í öðrum uppsjávarstofnum. Lífmassavísitala kolmunna var tæplega 2,8 milljónir tonna, sem er 14% aukning milli ára, og vísitala síldar tæplega 5,9 milljónir tonna, eða 28% meiri en í fyrra.

Niðurstöðurnar verða meðal þeirra gagna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, notar við stofnmat. Ráðgjöf um aflamark næsta árs fyrir makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna verður birt 30. september.

Deila: