Blængur með 660 milljóna túr

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í morgun eftir einn besta túr skipsins. Aflinn var 822 tonn upp úr sjó og verðmæti hans um 660 milljónir króna.
Veiðiferðin stóð í 30 daga og var aflaverðmætið því að jafnaði um 22 milljónir króna á dag. Mest var af ýsu í aflanum, eða 330 tonn, en einnig þorskur, karfi og ufsi.
„Þessi veiðiferð er á meðal þeirra bestu sem við höfum upplifað á Blængi og kannski er þetta besti túrinn. Það getur enginn verið ósáttur við túr eins og þennan – þetta er sannkallaður þrusutúr,“ segir Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Blængur var fyrstu tíu daga túrsins að veiðum á suðausturmiðum en hélt síðan á Vestfjarðamið. Skipið heldur á ný til veiða annað kvöld.


