Brynjar Níels. nýr formaður Faxaflóahafna

Ný stjórn Faxaflóahafna hefur tekið til starfa og hélt sinn fyrsta fund í hádeginu í dag. Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar.
Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda Faxaflóahafna, en þeir eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Miklar breytingar verða á stjórninni þar sem fimm af sjö aðalmönnum eru nýir.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir situr áfram sem óháður stjórnarmaður fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Páll Brynjarsson sem sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar.
Úr stjórninni hverfa Líf Magneudóttir fráfarandi formaður, Hildur Björnsdóttir fráfarandi varaformaður og Már Másson fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Þá hverfa einnig Helga Harðardóttir fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar og Guðmundur Ingþór Guðjónsson fyrir hönd Akraneskaupstaðar.
Faxaflóahafnir þakka fráfarandi stjórn fyrir störf hennar í þágu félagsins.
