Ýsuna vantar algjörlega

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 82 tonna afla, mest þorsk. Aflinn fékkst að langmestu leyti á Fætinum en einnig var veitt á Verkamannabankanum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri segir að töluvert hafi verið leitað að ýsu, meðal annars á Breiðdalsgrunni, en án árangurs.
„Sannleikurinn er sá að það hefur ekki verið nein sérstök veiði á þessum slóðum að undanförnu og ýsuna vantar algjörlega. Hún er bara ekki mætt. Þorskurinn sem fékkst er hins vegar hinn ágætasti og hentar örugglega mjög vel í vinnsluna,“ segir Einar Ólafur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Birtingur heldur á ný til veiða í kvöld.
