5.600 tonn af makríl unnin í Neskaupstað

Deila:

Um 5.600 tonn af makríl hafa verið unnin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað það sem af er vertíð, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Beitir NK kom með 650 tonn úr Smugunni um síðustu helgi og Margrét EA kom með tæp 500 tonn í nótt.

Oddur Einarsson yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu segir vinnsluna hafa gengið afar vel og skipin skilað úrvalshráefni á land. Makríllinn hefur að langmestu leyti verið heilfrystur en einnig hefur hluti hans verið hausaður og flakaður.

Hlé í makrílvinnslunni hafa meðal annars verið nýtt til að frysta kolmunna frá Bjarna Ólafssyni AK. Alls hafa 1.300 tonn af kolmunna verið fryst í verinu og er skipið væntanlegt með nýjan farm.

Nú fer að líða að lokum makrílvertíðar og undirbúningur er hafinn fyrir síldarvertíðina sem hefst síðar í september.

Deila: