Ný stafræn þjónusta hjá Samgöngustofu

Deila:

Skipaeigendur og sjómenn geta nú nálgast mikilvægar upplýsingar um sín mál á Mínum síðum á Ísland.is. Um er að ræða nýja stafræna þjónustu Samgöngustofu sem á að bæta yfirsýn og einfalda aðgengi að upplýsingum.

Eigendur skipa og báta geta undir „Eignir og tæki“ séð skráningar- og tæknilegar upplýsingar um skip sín auk gildistíma helstu skipsskírteina.

Sjómenn geta undir „Starfsleyfi“ nálgast upplýsingar um meðal annars atvinnuskírteini, próf, nám og námskeið, undanþágur og sjóferðabækur. Þar má einnig sjá upplýsingar um lögskráningardaga og siglingatíma.

Upplýsingarnar voru áður eingöngu aðgengilegar í Skútunni, skipaskrá og lögskráningarkerfi Samgöngustofu, en eru nú einnig aðgengilegar á Mínum síðum á Ísland.is.

Deila: