Nýtt íslenskt öryggistæki fyrir sjómenn

Deila:

Landssamband smábátaeigenda vekur athygli á Strandvara, nýju íslensku öryggistæki sem ætlað er að vara sjómenn við hættu á strandi og árekstri við önnur skip.

Fram kemur á vef LS að Strandvari sé íslensk nýsköpun í sjóöryggi sem þróuð hafi verið í samstarfi við sjómenn, rannsóknaraðila og tækniþróunarfólk. Markmiðið sé að auka öryggi og fækka slysum á sjó.

Samkvæmt upplýsingum sem LS vísar til hafa orðið yfir 90 strandanir við Ísland frá árinu 2000 sem rekja má til svefns eða vanrækslu í brúnni. Í flestum tilvikum hafi öryggisbúnaður ekki verið rétt stilltur eða slökkt á honum vegna falskra viðvarana.

Strandvari er ávallt virkur og hannaður þannig að viðvörun berist aðeins þegar raunveruleg hætta er talin á ferðum. Tækið styðst meðal annars við upplýsingar um sker, grynningar og siglingaleiðir og þekkir hafnir og eðlilega aðkomu að þeim. Þá vaktar það hreyfingu í brúnni og sækir sjálfkrafa upplýsingar um staðsetningu og færslu sjókvía.

Þróun Strandvara hófst árið 2013 með stuðningi Siglingastofnunar. Prófanir hófust árið 2017 og stóðu í um fjögur og hálft ár áður en sala tækisins hófst árið 2022.

Deila: