Gervikóralrifum komið fyrir á hafsbotni

Tólf þrívíddarprentuðum gervikóralrifum var komið fyrir á hafsbotni í Skeiðarárdýpi í sumar í tilraun sem miðar að því að kanna hvort hægt sé að endurheimta búsvæði kaldsjávarkórala sem raskast hafa af völdum botnveiðarfæra.
Tilraunin var hluti af þýskum rannsóknarleiðangri á rannsóknaskipinu Maria S. Merian dagana 28. júlí til 16. ágúst. Leiðangursstjórar voru Saskia Brix frá Senckenberg-stofnuninni og Stefán Áki Ragnarsson frá Hafrannsóknastofnun.
Rifin eru þrívíddarprentuð úr vistvænum sementsblöndum og vonast vísindamenn til þess að lirfur kórala og aðrar lífverur taki sér þar bólfestu. Þannig gætu með tímanum myndast ný búsvæði á svæðum þar sem kóralrif hafa orðið fyrir raski. Rannsóknin er hluti af evrópska verkefninu Redress.
Rifunum tólf var komið fyrir 29. júlí á tveimur svæðum innan friðunarsvæðis í Skeiðarárdýpi, sem lokað var árið 2011 til verndar búsvæðum kaldsjávar steinkórala. Á öðru svæðinu var eingöngu dauðan kóral að finna en á hinu bæði dauðan og lifandi kóral.
Við eitt rifanna var jafnframt komið fyrir rannsóknastöð sem tekur myndir tvisvar á sólarhring og safnar stöðugt upplýsingum um umhverfisaðstæður í eitt ár. Með því verður hægt að fylgjast með því hvort og hvernig lífverur nema land á rifinu og nýta það sem búsvæði.
Í leiðangrinum voru einnig rannsökuð kóralbúsvæði í Lónsdýpi, botndýralíf innan og utan friðunarhólfs við Langanes og hverasvæði við Grímsey. Að því loknu var haldið til Grænlands þar sem botndýralíf var rannsakað. Þar fundust meðal annars hvalabein á sjávarbotni, en slík bein geta myndað sérstök búsvæði fyrir fjölbreytt botndýralíf.

