Gorch Fock opið almenningi í Reykjavíkurhöfn

Þýska seglskipið Gorch Fock liggur nú við Faxagarð í Gömlu höfninni í Reykjavík og verður opið almenningi næstu daga. Gestum gefst þar tækifæri til að stíga um borð og kynnast skipinu, búnaði þess og starfi áhafnarinnar.
Gorch Fock er skólaskip þýska sjóhersins og eitt þekktasta seglskip Þýskalands. Það var smíðað árið 1958 og hefur síðan gegnt mikilvægu hlutverki við þjálfun sjóliðsforingja. Skipið er jafnframt þekkt sem „hvíti sendiherrann“ vegna hlutverks síns sem tákn þýskrar sjómennsku og alþjóðlegs samstarfs.
Reykjavík er síðasti viðkomustaður skipsins á 189. þjálfunarferð þess erlendis áður en haldið verður aftur til heimahafnar í Kiel. Gorch Fock kom síðast til Íslands árið 2009 en hafði áður heimsótt landið árið 1966.
Skipið verður opið almenningi við Faxagarð frá klukkan 14 til 17 dagana 2.–5. september. Gestir eru beðnir um að koma ekki með töskur, handtöskur eða bakpoka um borð og verður öryggiseftirlit við inngang skipsins.
Þýska sendiráðið stendur að heimsóknunum í samstarfi við áhöfn Gorch Fock og Faxaflóahafnir.

