Þórunn markaði tímamót hjá Hafró

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ársskýrslu sína fyrir árið 2025. Stærstu tíðindi ársins voru tilkoma nýja rannsóknaskipsins Þórunnar Þórðardóttur HF 300 auk þess sem stærsti áfangi til þessa náðist í kortlagningu hafsbotns innan íslensku efnahagslögsögunnar.
Þórunn Þórðardóttir var tekin í notkun 13. mars 2025 og um leið lauk tæplega 55 ára starfsferli Bjarna Sæmundssonar HF 30, sem hafði verið burðarás íslenskra hafrannsókna frá árinu 1970. Nýja skipið er 70 metra langt tvíorkuskip, búið rafknúnum skrúfum og öflugum rafhlöðum sem bæta orkunýtingu og draga úr umhverfisáhrifum. Skipið var smíðað á Spáni fyrir um fimm milljarða króna.
Annar stór áfangi náðist í kortlagningu hafsbotnsins. Um 55.300 ferkílómetrar bættust við samfelldar fjölgeislamælingar á árinu, meira en nokkru sinni áður á einu ári. Í lok árs höfðu 63,4% íslensku efnahagslögsögunnar verið kortlögð með þessum hætti.
Hafró hélt jafnframt áfram umfangsmikilli vöktun á umhverfi sjávar, svifi, botnfiskum, uppsjávarstofnum og sjávarspendýrum auk rannsókna í ferskvatni og vegna sjókvíaeldis. Meðal nýjunga var aukin notkun umhverfis-DNA og gervigreindar við tegundagreiningar og áframhaldandi þróun gervigreindarlíkana til aldursgreiningar fiska.
Eggert Benedikt Guðmundsson, nýfastráðinn forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir langtímarannsóknir einn helsta styrk stofnunarinnar.
„Breytingar í hafinu verða ekki skýrðar út frá einstökum mælingum heldur áratugalangri vöktun, markvissri gagnasöfnun og stöðugri þróun vísindalegra aðferða,“ segir Eggert í ávarpi sínu í ársskýrslunni.
Hann segir nýja rannsóknaskipið hafa styrkt getu Hafró til að fylgjast með breytingum í hafinu, þróa nýjar rannsóknaraðferðir og afla gagna sem verði grunnur að ráðgjöf næstu áratuga.
