Mokveiða makríl við Bretland

Deila:

Góð makrílveiði var hjá norska flotanum í síðustu viku og fór veiðin að mestu fram í breskri lögsögu. Alls voru 10.054 tonn af makríl skráð hjá Norges Sildesalgslag í vikunni, þar af komu 883 tonn frá erlendum skipum en norsku skipin veiddu rest.

Föstudagurinn 25. september var langbesti veiðidagurinn en þá voru 4.007 tonn skráð á einum degi.

Makríllinn sem fór beint til vinnslu var að meðaltali 459 grömm að þyngd. Strandnótaskip veiddu jafnframt um 150 tonn og var meðalþyngd þess afla 311 grömm.

Slæmt veður setti strik í reikninginn á makrílmiðunum í breskri lögsögu á sunnudag. Veðurspáin fyrir þessa viku er hins vegar betri og gera Norðmenn ráð fyrir áframhaldandi mikilli veiði.

Deila: