Olíuverð þrengir að evrópskum útgerðum

Hátt eldsneytisverð er farið að hafa veruleg áhrif á útgerðir í Evrópu og hafa Europêche og Evrópska flutningaverkamannasambandið, ETF, kallað eftir því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins framlengi og aðlagi núverandi stuðningsaðgerðir vegna eldsneytiskostnaðar.
Samtökin segja eldsneyti einn stærsta rekstrarkostnað fiskiskipaflotans og að margar útgerðir eigi orðið erfitt með að standa undir kostnaði við veiðiferðir. Skip séu þegar farin að draga úr veiðum eða fresta þeim, framlegð hafi minnkað og rekstrargrundvöllur fyrirtækja sé í aukinni hættu.
Samtökin benda jafnframt á að hækkandi eldsneytiskostnaður hafi bein áhrif á tekjur sjómanna og geti ógnað störfum í sjávarbyggðum.
Sérstakar áhyggjur eru af því að núverandi tímabundinn rammi ESB um ríkisaðstoð vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum rennur út í lok árs og sum landsbundin stuðningsúrræði enn fyrr. Europêche og ETF vilja að aðildarríkjum verði gert kleift að framlengja stuðninginn með einföldum og skjótum hætti á meðan hátt eldsneytisverð heldur áfram að hafa áhrif á rekstur flotans.
Javier Garat forseti Europêche segir sjávarútveginn ekki geta tekið endalaust á sig þá miklu hækkun sem orðið hefur á eldsneytiskostnaði og hvetur framkvæmdastjórnina til að tryggja að stuðningur falli ekki niður á meðan ástandið varir.
Meðfylgjandi mynd er frá Ítalíu.

