110 tonn úr fimm lögnum

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað góðum afla í Grindavík í vikunni eftir veiðar úti fyrir Suðaustur- og Suðurlandi.
Páll Jónsson landaði 90 tonnum úr fimm lögnum á mánudag. Benedikt Jónsson skipstjóri segir veðrið hafa verið leiðinlegt allan túrinn og mikill veltingur hafi haft áhrif á veiðarnar. Reynt var við ýsu á Gaurasvæðinu en án nægilegs árangurs og segir Benedikt enn beðið eftir stórri og fallegri ýsu.
Veiðum var síðan haldið áfram í Hornafjarðardýpi og á Síðugrunni. Innan við helmingur aflans var þorskur en einnig fékkst langa, keila og ýsa auk fleiri tegunda.
Sighvatur landaði 110 tonnum úr fimm lögnum í morgun. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri segir meira en helming aflans hafa verið löngu en einnig hafi fengist þorskur, ýsa, keila og keilubróðir. Þá komu um borð 16 kör af stórri náskötu við Ingólfshöfðahraun.
Veitt var í Breiðamerkurdýpi, Meðallandsbugt og við Ingólfshöfðahraun. Aðalsteinn segir nýfrysta síld frá Neskaupstað hafa reynst mjög vel sem beita.


