Erfitt að finna ýsu

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE landa í Neskaupstað um þessar mundir, en samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar hefur reynst erfitt að finna ýsu í veiðiferðum skipanna.
Bergey landaði um 60 tonnum í gær. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að skipið hafi verið kallað inn vegna þess að fisk vantaði í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík. Veiðiferðin var því stutt. Byrjað var á Gerpisflaki þar sem fékkst blanda af ýsu og þorski og síðan voru tekin tvö þorskhol í Litladýpi.
Vestmannaey landar fullfermi í dag. Egill Guðni Guðnason skipstjóri segir túrinn hafa gengið vel að öðru leyti en því að ýsuveiðin hafi valdið vonbrigðum. Skipið fékk um 30 tonn af ýsu þrátt fyrir stöðuga leit á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, Berufjarðarál og Breiðdalsgrunni.
Bræla er fram undan og gerir Egill Guðni ráð fyrir að Vestmannaey haldi ekki aftur til veiða fyrr en á föstudag.