Ráðgjöfin hækkar í öllum þremur tegundunum

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) leggur til að makrílafli í Norðaustur-Atlantshafi verði ekki meiri en 353 þúsund tonn árið 2027. Ráðgjöfin hækkar um 102% frá þessu ári, en fyrir árið 2026 var ráðlagt að veiða að hámarki 174 þúsund tonn. Ráðgjöf ICES fyrir kolmunna og norsk-íslenska síld hækkar einnig á milli ára.
Mikil hækkun makrílráðgjafarinnar skýrist meðal annars af því að hrygningarstofn makríls er nú aftur metinn yfir líffræðilegum hættumörkum. Ráðgjöfin fyrir árið 2026 hafði verið lækkuð um 70% frá árinu áður vegna versnandi stöðu stofnsins og er því um mikla breytingu að ræða á milli ára.
Fyrir kolmunna ráðleggur ICES að aflinn árið 2027 verði ekki meiri en um ein milljón og 64 þúsund tonn. Það er 25% aukning frá ráðgjöf ársins 2026, sem var um 851 þúsund tonn. Hækkunin er einkum rakin til góðrar nýliðunar árgangsins frá 2024, sem er nú orðinn hluti af hrygningarstofninum.
Ráðgjöf um veiðar á norsk-íslenskri síld hækkar einnig. ICES leggur til að afli ársins 2027 verði ekki meiri en 588 þúsund tonn, sem er 10% aukning frá ráðgjöf þessa árs upp á 534 þúsund tonn.
Ráðgjöf fyrir alla þrjá helstu uppsjávarstofnana hækkar því á milli ára, mest fyrir makríl þar sem ráðlagður afli meira en tvöfaldast.

