Reykjavíkurhöfn tilnefnd til ESPO-verðlauna

Reykjavíkurhöfn hefur verið tilnefnd til ESPO-verðlaunanna 2026 fyrir Vör, nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna. Þetta er í fyrsta sinn sem Reykjavíkurhöfn hlýtur tilnefningu til verðlaunanna.
Samtök evrópskra hafna, ESPO, tilkynntu tilnefningarnar 29. september. Reykjavíkurhöfn er ein fjögurra hafna sem koma til greina að þessu sinni ásamt höfnum í Cork, Dublin og Tarragona.
Yfirskrift verðlaunanna í ár er Dual-Use Port-City Projects og er þar horft til hafnarverkefna sem nýtast bæði hafnarstarfsemi og borgarsamfélaginu.
Vör var tekin í notkun vorið 2026 og er fyrsta sérbyggða farþegamiðstöð skemmtiferðaskipa á Íslandi. Yfir sumarmánuðina þjónar húsið farþegum skemmtiferðaskipa og hafnarstarfseminni en á veturna er það nýtt fyrir samkomur, veislur og aðra viðburði.
ESPO-verðlaunin verða afhent við athöfn í Brussel 10. nóvember.


