120 kokkar gegn sjóeldislaxi

Deila:

SeafoodSource greinir frá því að meira en 120 þekktir kokkar víðs vegar um heim hafi heitið því að taka sjóeldislax af matseðlum sínum. Fiskeldisgeirinn hefur mótmælt málflutningi herferðarinnar og segir hann gefa einhliða mynd af laxeldi.

Kokkarnir styðja herferðina Off The Table sem bresku náttúruverndarsamtökin WildFish standa að. Meðal þeirra sem hafa skrifað undir eru Alice Waters, Francis Mallmann, Hugh Fearnley-Whittingstall og fleiri þekktir matreiðslumenn. Undirritaðir koma frá 26 löndum í sex heimsálfum og hafa samanlagt hlotið meira en 90 Michelin-stjörnur.

Herferðin beinist einkum gegn laxeldi í opnum sjókvíum. Aðstandendur hennar halda því fram að laxeldi hafi neikvæð áhrif á villta laxastofna, meðal annars vegna laxalúsar, sjúkdóma og stroks eldisfisks.

Fulltrúar fiskeldis hafa hins vegar mótmælt þessum fullyrðingum. Þeir benda meðal annars á að fjölmargir þættir hafi áhrif á stöðu villtra laxastofna og segja að framleiðsla eldislax sé undir ströngu eftirliti og lúti umfangsmiklum reglum um umhverfisáhrif og velferð fiska.

Herferðin hefur farið vaxandi á undanförnum árum og miðar að því að draga úr eftirspurn eftir sjóeldislaxi með því að fá veitingastaði og kokka til að hætta að bjóða hann.

Deila: