ISI í viðræðum um sölu á spænsku laxafyrirtæki

Deila:

Iceland Seafood International hefur móttekið óskuldbindandi viljayfirlýsingu vegna 85% eignarhlutar félagsins í spænska fyrirtækinu Ahumados Domínguez. Félagið greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær.
Ahumados Domínguez sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á reyktum laxi og öðrum sjávarafurðum á Spáni.
ISI tekur fram að óvíst sé hvort af viðskiptunum verði. Möguleg sala er meðal annars háð frekari samningaviðræðum, áreiðanleikakönnun, endanlegum samningum og samþykki stjórnar félagsins. Þá gæti þurft samþykki skuldabréfaeigenda og lánveitenda.
Félagið segist munu upplýsa markaðinn um frekari þróun málsins eftir því sem við á.

Deila: