Lítill þéttleiki makríls við Ísland

Þéttleiki makríls í íslenskri efnahagslögsögu mældist lítill í sögulegu samhengi sumarið 2026 þótt hann hafi aukist lítillega frá metlágri stöðu árið áður. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hafrannsóknastofnunar um makríl sem birt var í gær.
Lífmassavísitala makríls í íslenskri lögsögu var um 60 þúsund tonn í sumar, samanborið við um 10 þúsund tonn árið 2025. Þrátt fyrir aukninguna er magnið enn langt undir því sem mældist þegar mest var. Á árunum 2015–2017 var vísitalan á bilinu þrjár til fjórar milljónir tonna.
Útbreiðsla makríls við Ísland hefur jafnframt dregist verulega saman á síðustu árum. Á árunum 2010–2017 var makríll dreifður meðfram austur-, suður- og vesturströnd landsins en síðan 2024 hefur hann einungis mælst suðaustur og austur af landinu.
Í uppsjávarleiðangri sumarsins mældist ekkert af makríl fyrir vestan og sunnan land. Mesti þéttleikinn var austan við landið og var útbreiðslan svipuð og árið 2025. Hafrannsóknastofnun bendir jafnframt á að stærri hluti makrílstofnsins hafi undanfarin ár haldið sig í Noregshafi, einkum suðaustan til og í norðurhluta Norðursjávar.
Árið 2025 veiddu íslensk skip 129.628 tonn af makríl. Um 30% aflans fékkst innan íslenskrar efnahagslögsögu en 70% á alþjóðlegu hafsvæði í Noregshafi. Meðallengd makríls í afla íslenskra skipa var 37 sentímetrar og minnkaði um einn sentimetra frá árinu áður.
