Kínverjar stefna á úthafseldi

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að sameina stuðning við svokölluð sjávarbú og uppbyggingu búnaðar fyrir fiskeldi langt frá landi í eina heildstæða áætlun fyrir árin 2026 til 2030. Markmiðið er að efla stórt og tæknivætt fiskeldi á opnu hafi.
Samkvæmt upplýsingum sem kínversk stjórnvöld birtu í lok september verða ekki samþykkt ný, sjálfstæð verkefni undir eldri kerfum. Verkefni sem þegar hafa verið samþykkt eiga að ljúka í síðasta lagi árið 2027 en ný uppbygging færist undir sameinaða áætlun. Stjórnvöld hafa jafnframt tekið fram að stuðningur við greinina eigi ekki að minnka þótt fyrirkomulaginu sé breytt.
Kína hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á að færa fiskeldi lengra frá landi og nýta stærri og tæknivæddari eldiskvíar, fljótandi mannvirki og sérhæfð fiskeldisskip. Í Guangdong-héraði hafa meðal annars verið tekin í notkun ný stór eldiskerfi sem eru hönnuð til að þola meiri öldugang og strauma en hefðbundnar strandkvíar.
Þróunin er hluti af stærri áformum Kínverja um að auka framleiðslu sjávarafurða og byggja upp svokallað „blátt matvælabúr“. Í Zhanjiang í Guangdong var verðmæti sjávarútvegskeðjunnar komið yfir 100 milljarða júana árið 2025 og þar hefur verið unnið að fjölgun stórra eldissvæða á opnu hafi.
Samhliða þessu hefur verið fjárfest í sjálfvirkni og stafrænum lausnum. Í sumar hóf meðal annars fyrsta stóra sjálfvirka fóðurflutningaskip Kína tilraunarekstur fyrir úthafsfiskeldi við Zhanjiang.



