Ný könnun: Fiskneysla eykst á ný

Neysla á fiski og sjávarfangi er tekin að aukast á ný samhliða vaxandi áhuga neytenda á sjálfbærni, samkvæmt nýrri alþjóðlegri könnun Aquaculture Stewardship Council, ASC.
Könnunin náði til tæplega 14.800 neytenda sjávarafurða í 14 löndum. Niðurstöðurnar benda til þess að neysla hafi aukist um 2% að nettó frá árinu 2024, þegar samdráttur hafði mælst. Aukningin var mest í Bandaríkjunum, þar sem hún nam 12%.
Bragð er áfram helsta ástæða þess að neytendur velja fisk og sjávarfang en heilsa og næringargildi koma þar á eftir. Ferskleiki vegur jafnframt sífellt þyngra við kaup og er nú mikilvægasta atriðið sem neytendur nefna sjálfir, á undan verði.
Á sama tíma hefur áhugi á sjálfbærni aukist verulega. Alls segjast 78% svarenda frekar velja vöru sem hefur minni neikvæð áhrif á fólk og umhverfi þegar tveir kostir eru að öðru leyti sambærilegir.
Könnunin sýnir einnig að neytendur bera meira traust til óháðra vottana en upplýsinga frá fyrirtækjum sjálfum þegar kemur að sjálfbærni. ASC segir niðurstöðurnar benda til þess að neytendur séu í auknum mæli að horfa bæði til gæða og uppruna sjávarafurða við kaup.
