Kaldvík fær tímabundnar undanþágur

Deila:

Kaldvík hefur samið við lánveitendur sína um tímabundna undanþágu frá tilteknum fjárhagslegum skilyrðum lánasamninga í kjölfar marglyttuáfallsins í Reyðarfirði.

Félagið greindi frá því 1. október að marglyttuáfallið hefði haft neikvæð áhrif á líffræðilega framleiðslu og fjárhagsstöðu þess. Við lok september uppfyllti Kaldvík hvorki skilyrði um lágmarkslausafé né kröfu sem laut að heimild félagsins undir veltulánafyrirgreiðslu.

Lánveitendur hafa fallist á að veita undanþágu frá þessum kröfum til og með 25. október. Undanþágan er háð ákveðnum skilyrðum, meðal annars reglulegri upplýsingagjöf frá Kaldvík til lánveitenda um þróun í líffræðilegri framleiðslu og áhrif hennar á fjárhag félagsins.

Kaldvík og lánveitendur þess munu áfram ræða fjárhagsáætlun fyrir tímabilið eftir að undanþágan rennur út.

Kaldvík er stærsti laxeldandi á Íslandi og er skráð bæði á Euronext Growth í Ósló og Nasdaq First North Growth Market Iceland.

Deila: