Nýr sjóvarnargarður risinn

Faxaflóahafnir hafa lokið framkvæmdum við nýjan sjóvarnargarð á Grundartanga en alls fóru yfir 200 þúsund rúmmetrar af kjarna og grjóti í verkið.
Garðurinn var reistur vestan við núverandi sjóvarnargarð Faxaflóahafna og er hluti af nýrri flæðigryfju á svæðinu. Framkvæmdin á að tryggja áframhaldandi þjónustu við iðnfyrirtækin á Grundartanga þar til aðrir kostir verða í boði.
Við framkvæmdina var unnið og flokkað mikið magn af kjarna og grjóti sem flutt var í garðstæðið. Þá var lagður vinnuvegur að vestari enda garðsins og lífrænn jarðvegur fjarlægður ofan af klöpp og fluttur í mön vestan við grjótnámssvæðið.
Faxaflóahafnir segja framkvæmdina lið í áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi innviða Grundartangahafnar. Grundartangi er eitt stærsta iðnaðar- og hafnarsvæði landsins og næststærsta höfn Faxaflóahafna. Þar er fjölbreytt iðnaðarstarfsemi og svæðið hefur mikilvægar tengingar við bæði land- og sjóflutninga.

