Ígulkeraveiðum lokað til næsta hausts

Deila:

Veiðar á skollakoppi, eða ígulkerum, hafa verið stöðvaðar í Ísafjarðardjúpi og Steingrímsfirði í Húnaflóa. Hámarksafla á báðum svæðum hefur verið náð á fiskveiðiárinu 2026/2027.

Samkvæmt tilkynningu Fiskistofu frá 27. október gildir bannið í Ísafjarðardjúpi frá og með 22. október 2026. Í Steingrímsfirði tók það gildi 28. október.

Á báðum svæðum eru veiðar bannaðar til og með 31. ágúst 2027.

Deila: