Vinnslustöðin komin með 11 þúsund tonn af síld

Deila:

Við Vestmannaeyjar.

Vinnslustöðin hefur tekið á móti um 11 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld á yfirstandandi vertíð. Samkvæmt frétt á vef félagsins frá 28. október voru þá um 1.200 tonn eftir af kvótanum og vertíðarlok að nálgast.

Nýtt uppsjávarhús var tekið í notkun í upphafi vertíðar og fór vinnslan rólega af stað meðan búnaður var stilltur. Félagið segir bæði húsið og endurbætur á uppsjávarvinnslunni hafa reynst vel.

Veður hefur haft áhrif á veiðarnar og aflabrögð verið misjöfn. Gæði síldarinnar hafa þó almennt verið góð að sögn Vinnslustöðvarinnar og verulegur hluti aflans verið frystur.

Næst verður athyglinni beint að íslenskri sumargotssíld. Í tilkynningunni kemur fram að undirbúningur þeirra veiða sé fyrirhugaður í byrjun nóvember. Gert er ráð fyrir veiðum vestan við land og á félagið rúmlega 6.000 tonn eftir af þeim kvóta.

Deila: