Kaldvík vill afla 97 milljóna evra

Sjókvíar Kaldvíkur.
Kaldvík hyggst afla að minnsta kosti 97 milljóna evra með hlutafjáraukningu sem er forsenda fyrirhugaðrar endurfjármögnunar félagsins. Gert er ráð fyrir að henni ljúki á fjórða ársfjórðungi og að félaginu standi eftir að minnsta kosti 70 milljónir evra í nýju handbæru fé eftir uppgjör víkjandi skulda við hluthafa og kostnaðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu Kaldvíkur frá 29. október. Samkomulag við lánveitendur gerir ráð fyrir að heildarlánaheimildir aukist úr um 207 milljónum evra í um 232 milljónir og gjalddagar lengist til 30. júní 2030. Breytingarnar taka ekki gildi fyrr en tilskilin skilyrði hafa verið uppfyllt.
Austur Holding, stærsti hluthafi félagsins, hyggst með stuðningi eigenda sinna veita allt að 25 milljóna evra ábyrgð. Endanleg gögn um ábyrgðina og önnur skilyrði hluthafastuðningsins áttu samkvæmt tilkynningunni að liggja fyrir 2. nóvember.
Fjármögnunarþörfin jókst eftir að marglyttur ollu tjóni í eldi félagsins í Reyðarfirði. Lánveitendur hafa samþykkt framlengingu undanþágu frá lánaskilmálum til 17. desember, með fyrirvara um endanlega samningsgerð vegna hluthafastuðnings.

