Síldarvertíð lokið hjá Samherja

Vilhelm Þorsteinsson EA-11.
Síldarvertíðinni er lokið hjá Samherja eftir að Vilhelm Þorsteinsson EA-11 og Bjarni Ólafsson AK-70 lönduðu síðustu síldarförmum ársins mánudaginn 26. október. Vilhelm kom með um 950 tonn til Eskifjarðar en Bjarni Ólafsson landaði 900 tonnum á Fáskrúðsfirði.
Í frétt Samherja frá 28. október segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni, að síðasta veiðiferðin hafi tekið sólarhring, höfn í höfn. Aflinn fékkst í tveimur holum á Seyðisfjarðardýpi og Norðfjarðardýpi.
Vertíðin hófst um miðjan september. Guðmundur segir veiðina hafa verið ágæta á köflum þótt brælur hafi truflað. Lengd veiðiferða hafi einnig ráðist af gangi vinnslunnar, enda skipti máli að koma fersku hráefni reglulega að landi.
Vilhelm landaði allri síldinni á Eskifirði til vinnslu hjá Eskju. Að síðustu löndun lokinni tók við sigling til heimahafnar á Akureyri og undirbúningur fyrir komandi loðnuvertíð.