Hermann kaupir Vaka aftur

Hermann Kristjánsson hefur gengið frá kaupum á Vaka fiskeldiskerfum af MSD Animal Health. Hermann stofnaði fyrirtækið fyrir um 40 árum en seldi það fyrir um áratug. Samhliða kaupunum hafa Vaki og íslenska tæknifyrirtækið Ration undirritað samning um samruna félaganna.
Í fréttatilkynningu segir að markmiðið með samrunanum sé að efla tækniþróun og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki. Áhersla verði meðal annars lögð á nýtingu gagna, sjálfvirkni og lausnir fyrir vaxandi landeldi.
Gunnar Óli Sölvason verður framkvæmdastjóri Vaka. Hann hefur bakgrunn í verkfræði, reynslu af æðstu stjórnunarstörfum hjá Mikra og starfaði áður sem framkvæmdastjóri Micro. Með honum starfa núverandi starfsfólk Vaka, fyrrverandi stjórnendur félagsins og nýir samstarfsmenn.
Vaki hefur um áratugaskeið þróað búnað til talningar, stærðarflokkunar, meðhöndlunar, dælingar og vöktunar fisks. Fyrirtækið hefur verið hluti af MSD Animal Health frá árinu 2019. Samkvæmt tilkynningunni heldur reksturinn áfram óbreyttur og viðskiptavinir fá áfram þjónustu og stuðning við búnað sem þeir nota nú.

Ration hefur þróað fóðurstýringarkerfið RationFEED, sem nýtir tölvusjón og gervigreind til að stýra fóðrun í landeldi og draga úr fóðursóun. Kerfið er meðal annars í notkun hjá Laxey, First Water og Salmon Evolution. Hluti starfsfólks Ration hefur áður komið að tækniþróun hjá Vaka.
Félögin segja sameinaða þekkingu geta hraðað vöruþróun og veitt fiskeldisfyrirtækjum betri yfirsýn yfir reksturinn. Jafnframt verði áfram byggt á þeim búnaði og lausnum sem núverandi viðskiptavinir nota.

