Kynna hvernig velja megi verndarsvæði í hafi

Hvernig á að velja svæði til verndar í hafinu? Sú spurning verður til umfjöllunar á opinni málstofu Hafrannsóknastofnunar á morgun, miðvikudaginn 4. nóvember. Málstofan fer fram að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði klukkan 13:15–16:00 og er öllum opin.
Samkvæmt tilkynningu stofnunarinnar hefur Ísland skuldbundið sig til að vernda, stýra og vakta að minnsta kosti 30% hafsvæða sinna fyrir árið 2030. Hafró veitir stjórnvöldum ráðgjöf um val svæða til verndar.
Á málstofunni verður meðal annars kynnt skipulagsvefsjáin BioProtect Marine Planner. Hún sameinar gögn um líffræðilega fjölbreytni, athafnir manna og verndarmarkmið og getur aðstoðað við að finna forgangssvæði til verndar.
Farið verður yfir ráðgjöf Hafró um svæðisvernd og hlutverk Evrópuverkefnisins BioProtect í því ferli. Dr. Oisín Callery frá Háskólanum í Galway á Írlandi kynnir vefsjána.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fjármagnar verkefnið, sem miðar að því að hraða vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni í hafinu og við strendur.


