MarWall tekið í notkun hjá Bremnes Seashore

Laxeldisfyrirtækið Bremnes Seashore hefur tekið hálflokaða kvíakerfið MarWall frá ELDI í notkun á eldisstað sínum við Gissøy í Bømlo í Noregi. Samkvæmt tilkynningu frá Hampiðjunni benda fyrstu niðurstöður til lágs lúsastigs og lítillar dánartíðni í kvínni, en kerfið hefur verið í rekstri í nokkrar vikur.
Lausninni er ætlað að draga úr snertingu fisks við lúsalirfur áður en þörf verður á meðhöndlun. Djúp lúsapils mynda hindrun gegn yfirborðssjó, þar sem mest hætta er á laxalús, og súrefnisbættum sjó er jafnframt dælt inn í kvína af meira dýpi. Með þessu er stefnt að stöðugum vatnsgæðum og bættum aðstæðum fyrir fiskinn.
MarWall hefur verið sett upp í einni kví á Gissøy en aðrar kvíar á eldisstaðnum eru áfram reknar með hefðbundnum hætti. Þannig getur Bremnes Seashore borið saman líffræðilega þætti og rekstur kvía með og án kerfisins.
Í tilkynningunni segir að reynslan af fyrstu vikunum lofi góðu. Fylgst verður með áhrifum kerfisins yfir lengri tíma og framvindunni næstu mánuði.

