Fundu 34 fiskikör í karaleiðangri

Starfsmenn Bergs–Hugins fundu 34 fiskikör í eigu Síldarvinnslunnar í leitarleiðangri um Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanes. Samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar höfðu körin verið tekin í óleyfi og notuð í ýmsum tilgangi.
Arnar Richardsson og Rúnar Þór Birgisson fóru í leiðangurinn. Arnar segir kör fyrirtækisins reglulega finnast þar sem þau eigi ekki að vera, þrátt fyrir að þau séu merkt eigandanum og ætluð undir fisk og fiskafurðir.
Eitt kar fannst úti á túni við fjárrétt. Önnur voru notuð undir veiðarfæri og ýmiss konar dót. Arnar segir alvarlegast að fiskvinnslufyrirtæki hafi tekið körin og notað þau í starfsemi sinni, meðal annars undir salt og saltfisk eða við fiskflutninga.
Hann segir meðferð karanna þó hafa batnað verulega á seinni árum. Síldarvinnslan hvetur fólk til að koma körum fyrirtækisins til Eimskips, Flytjanda eða Fiskmarkaðar Íslands svo þau skili sér til eigandans.
Heimild: Síldarvinnslan.

