Icelandic Salmon aftur með jákvæða rekstrarafkomu

Icelandic Salmon skilaði aftur jákvæðri rekstrarafkomu á þriðja ársfjórðungi ársins. Lægri kostnaður og betra söluverð stuðluðu að bættum rekstri, samkvæmt uppgjörstilkynningu norska móðurfélagsins SalMar.
Væntingar um sláturmagn Icelandic Salmon á árinu 2026 hafa þó verið lækkaðar nokkuð. Fyrir árið 2027 gerir SalMar ráð fyrir að sláturmagn félagsins verði 18 þúsund tonn.
SalMar-samstæðan slátraði alls 105.100 tonnum á þriðja ársfjórðungi, sem er met hjá félaginu. Rekstrarhagnaður samstæðunnar, samkvæmt mælikvarðanum Operational EBIT, nam 1.609 milljónum norskra króna.
SalMar segir lægri kostnað, meira sláturmagn og betra söluverð hafa stuðlað að bættri afkomu samstæðunnar.
Heimild: SalMar.


