Hagsmunum Íslands best borgið utan ESB

185
Deila:

Ný ríkisstjórn hyggst skipanefnd, sem meðal annars er ætlað að leggja fram tillögur um samfélagslega sátt um greinina. Í stjórnarsáttmálanum kemur einnig fram Íslandi sé best borgið utan Evrópusambandsins. Kaflinn um sjávarútvegsmál hljóðar svo:

»Skipuð verður nefnd til að kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum og meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Nefndinni verði falið að bera saman stöðuna hér og erlendis og leggja fram tillögur til að hámarka möguleika Íslendinga til frekari árangurs og samfélagslegrar sáttar um umgjörð greinarinnar.

Nefndin falli einnig um hvernig hægt er að auka gagnsæi í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sérstaklega meðal stærstu fyrirtækja landsins. Þá meti nefndin árangur af atvinnu- og byggða[1]kvóta og strandveiðum til að styðja við atvinnulíf í landsbyggðunum.

Fylgt verður eftir tillögum starfshóps um græn skref í sjávarútvegi til að flýta eins og kostur er orkuskiptum í sjávarútvegi og ná markmiðum um samdrátt í losun.

» Mótuð verður heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu verður lögð áhersla á tækifæri til atvinnusköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna.

» Áfram verður stutt við öfugt styrkjakerfi, samstarf við háskólasamfélagið og stuðningsumhverf rannsókna og þróunar til að stuðla að nýsköpun í sjávar[1]útvegi og tengdum greinum.“

Í kaflanum um utanríkismál segir svo:

„Hagsmunum Íslands er best borgið utan Evrópusambandsins. Ríkisstjórnin mun leggja aukna áherslu á framkvæmd og þróun EES-samningsins þannig að hagsmunir og fullveldi Íslands í samstarf og viðskiptum við önnur ríki sé tryggt.“

Deila: