Ægir Páll ráðinn framkvæmdastjóri HB Granda

Deila:

Stjórn HB Granda samþykkti á fundi sínum í gær nýtt skipurit félagins. „Verður skipulag félagsins einfaldara en áður og styður það við aukna áherslu félagsins á kjarnastarfsemi sína.  Nýtt starf framkvæmdastjóra verður til en það sér um botnfisk-, uppsjávar-, markaðs- og mannauðssvið félagsins. Fækkað verður í framkvæmdarstjórn félagsins og munu hana skipa forstjóri, fjármálastjóri og framkvæmdastjóri.

Ægir Páll Friðbertsson

Ægir Páll Friðbertsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HB Granda. Hann er Cand. oecon frá HÍ og hefur lokið öllum námskeiðum í mastersnámi í fjármálum frá HÍ. Ægir Páll hefur í nærri tvo áratugi starfað sem stjórnandi eða ráðgjafi sjávarútvegsfyrirtækja en áður var hann lánasérfræðingur og viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka í níu ár. Undanfarin þrjú ár hefur hann gengt starfi framkvæmdastjóra Brims hf.,“ samkvæmt frétt frá HB Granda.

 

Deila: