Aflabrögðin með ágætum

86
Deila:

Ísfisktogarinn Akurey AK var á miðvikudag að veiðum á Eldeyjarbankanum. Sagðist skipstjórinn, Eiríkur Jónsson, vonast til að hægt yrði að bæta við nokkrum tonnum af þorski áður en siglt yrði til Reykjavíkur en þar var aflalandað í gær.

,,Aflabrögðin hafa verið með ágætum síðustu vikurnar. Fyrir daginn í dag vorum við komnir með 110 til 115 tonna afla eftir rúma þrjá sólarhringa á veiðum. Það eru góð 35 tonn á dag,” segir Eiríkur í samtali á heimasíðu Brims, en hann greinir sömuleiðis frá því að aflinn sé jöfnum höndum þorskur, gullkarfi og ufsi.

,,Við byrjuðum túrinn á Eldeyjarbanka en færðum okkur svo yfir á Selvogsbankann. Aflinn var ágætur á báðum stöðum. Ég ákvað að enda túrinn á Eldeyjarbankanum en þar var mokveiði á þorski fyrir tveimur til þremur dögum síðan,” segir Eiríkur en hann upplýsir að fiskurinn á slóðinni sé vel haldinn og hið besta hráefni.

,,Þorskurinn er til að mynda. mjög góður. Meðalvigtin er fjögur til fimm kíló. Hins vegar hef ég heyrt að mönnum finnist ufsinn vera í smærri kantinum. Það er þó ekki okkar reynsla,” segir Eiríkur Jónsson.

Deila: