Aflasamdráttur í ágúst

100
Deila:

Landaður afli í ágúst 2021 var 108,9 þúsund tonn sem er 17% minni afli en í ágúst 2020. Botnfiskafli var um 39 þúsund tonn sem er svipaður afli og í fyrra. Af botnfisktegundum var þorskur tæp 20 þúsund tonn. Uppsjávarafli var rúmlega 65 þúsund tonn sem er 26% minni afli en í ágúst 2020. Mest var veitt af makríl, eða rúm 63 þúsund tonn.

Á 12 mánaða tímabilinu frá september 2020 til ágúst 2021 var heildaraflinn tæplega 1.052 þúsund tonn sem er 4% meiri afli en á sama tímabili árið áður. Á tímabilinu veiddust 480 þúsund tonn af botnfisktegundum og 540 þúsund tonn af uppsjávartegundum.

Samkvæmt bráðabirgðatölum var afli strandveiðibáta samtals 12.142 tonn á strandveiðitímabilinu 1. maí til 20. ágúst 2021, en var 11.867 tonn árið 2020. Meginuppistaða strandveiðiaflans 2021 var þorskur eða 11.131 tonn og ufsi rúm 906 tonn.

Landaður afli í ágúst 2021, metinn á föstu verðlagi, lækkar um 8,8% samanborið við ágúst í fyrra. Magnvísitala hefur einnig verið uppfærð fyrir fyrri mánuði ársins samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Fiskafli
 ÁgústSept-ágúst
20202021%2019-20202020-2021%
Fiskafli á föstu verði
Vísitala108,599,0-8,8
Fiskafli í tonnum
Heildarafli130.724108.850-171.010.8271.051.8714
Botnfiskafli38.91439.1111461.662480.3344
Þorskur20.11919.833-1278.591277.164-1
Ýsa4.2874.8421348.43359.61923
Ufsi6.8685.686-1753.35656.3336
Karfi5.9466.5201051.91452.5941
Annar botnfiskafli1.6942.2303229.36934.62418
Flatfiskafli2.7773.028922.51325.14712
Uppsjávarafli88.42265.284-26519.596539.2754
Síld2.5821.038-60141.956124.411-12
Loðna0070.726
Kolmunni7201.06848225.631210.673-7
Makríll85.12063.178-26152.007133.458-12
Annar uppsjávarfiskur027265
Skel- og krabbadýraafli6101.4261347.0547.0991
Annar afli0216625
Deila: