Áform um 10.000 fm hátækni vinnsluhús á Patreksfirði

Deila:

Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing á milli Arnarlax og Vesturbyggðar um uppbyggingu nýs hátæknivinnsluhúss fyrir eldisfisk í Vesturbyggð, svo fremi sem samningar nást og allar forsendur standast. Samkvæmt viljayfirlýsingunni hyggst Arnarlax reisa nýtt atvinnuhúsnæði á Vatnseyri á Patreksfirði þar sem áætlað er að starfi um 100 manns. Gert er ráð fyrir að unnt verði að vinna allt að 80.000 tonn af eldisfiski í húsinu.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvenær framkvæmdir geti hafist. Næstu skref eru að ljúka við gerð samninga, teikna upp nýtt deiliskipulag svæðisins og undirbúa framkvæmdir með niðurrifi, flutningi á núverandi starfsemi og uppbyggingu frekari innviða á svæðinu. Jafnframt verður skoðað nánar hvernig núverandi innviðir félagsins á Bíldudal nýtast nærsamfélaginu og fyrirtækinu sem best til áframhaldandi uppbyggingar.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að eldra húsnæði Straumness, sem stendur á lóðinni, verði rifið og móttökusvæði fyrir úrgang verði flutt. Gert er ráð fyrir uppbyggingu stórskipakants við Patrekshöfn, uppsetningu biðkvía við höfnina, auk þess sem gerður verði langtímasamningur um greiðslur til sveitarfélagsins í formi aflagjalda.

Í viljayfirlýsingunni er einnig mælt fyrir um að gert verði samkomulag um uppgjör og greiðslu á útistandandi kröfum vegna aflagjalda, sem hafa verið til meðferðar fyrir héraðsdómi Vestfjarða að undanförnu.

„Ég er mjög ánægður með þetta tímamóta-samkomulag við Vesturbyggð. Þetta er fyrsta skrefið af mörgum en viljayfirlýsingin gerir okkur kleift hefja formlegar leyfisumsóknir og hönnunar- og undirbúningsvinnu fyrir uppbyggingu á hátæknivinnsluhúsi á Patreksfirði sem skapa mun fjölmörg  verðmæt störf. Fjárfestingin mun jafnframt efla samkeppnishæfni greinarinnar og treysta stöðu fiskeldis á Vestfjörðum til framtíðar,”segir Björn Hembre, forstjóri Arnarlax

„Það er ánægjulegt að Arnarlax og Vesturbyggð hafi náð saman um þessa mikilvægu framtíðaruppbyggingu á sunnanverðum Vestfjörðum. Fiskeldi er stærsti atvinnuvegurinn í landshlutanum og mikilvægt að nú liggi fyrir framtíðarsýn af beggja hálfu um áframhaldandi uppbyggingu fiskeldis og tengdrar starfsemi í Vesturbyggð,“ Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.

Deila: