Áframhaldandi meðbyr í pöntunum hjá Marel

92
Deila:

 „Heimsfaraldurinn hefur haft varanleg áhrif á virðiskeðju matvæla þar sem sjálfvirknivæðing, róbótatækni og rafrænar lausnir leiða framþróun sjálfbærrar matvælavinnslu. Skortur á vinnuafli, launaskrið og krafa um fjarlægðarmörk á vinnustöðum ýta undir auknar fjárfestingar. Með stöðugri nýsköpun hefur Marel undanfarið kynnt fjölda nýrra lausna sem styðja vel við aukna samkeppnishæfni viðskiptavina okkar. Í núverandi markaðsumhverfi skiptir lykilmáli að búa yfir snerpu og sveigjanleika til að svara ákalli neytenda um öruggar gæðavörur sem eru framleiddar á sjálfbæran hátt og henta fyrir mismunandi dreifileiðir í gegnum netverslun, veitingarekstur og hefðbundna stórmarkaði. Þetta segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi. Hann segir þá ennfremur:

„Á þremur síðustu ársfjórðungum hafa pantanir náð nýjum hæðum. Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 361 milljónum evra og samanlagðar pantanir fyrir fyrstu níu mánuði ársins jukust um 20% á milli ára. Sérstaklega áttu alifuglaiðnaður og laxaiðnaður góðu gengi að fagna í fjórðungnum þar sem viðskiptavinir eru að tryggja sér nýjar framleiðslulínur með framsæknum róbótum, skurðarlausnum og skynjaratækni auk margvíslegra hugbúnaðarlausna. Við höfum væntingar um góða áframhaldandi þróun í pöntunum, þar sem söluverk í vinnslu eru enn að vaxa þvert á iðnaði og landsvæði og við horfum því bjartsýn fram á veginn.

Við höfum siglt nokkuð stöðugt í gegnum heimsfaraldurinn en enn gætir áhrifa af áskorunum tengdum aðfangakeðju, auknum flutningskostnaði og verðbólgu í hrávörum. Til að mæta þessum áskorunum höfum við lagt áherslu á aukna vöruþróun, aukið markaðs- og sölustarf á lykilmörkum og lagt allt kapp á að tryggja afhendingu á vörum okkar og þjónustu á réttum tíma til viðskiptavina. Tekjur í fjórðungnum voru 332 milljónir evra með 11% rekstrarframlegð, sem er töluvert undir sögulegri afkomu og markmiðum okkar. Til að mæta auknum kostnaði hækkuðum við verð á vöru og þjónustu um 4-6% í fjórðungnum sem mun smám saman skila sér í auknum tekjum. Við höfum nýtt sterkan efnahag félagsins til að bæta enn í vöru- og íhlutabirgðir til að mæta áskorunum í aðfangakeðju og tryggja að matvælakeðjan haldist gangandi. Sjóðstreymi er firnasterkt það sem af er ári þrátt fyrir verulega aukningu á birgðum.

Í ljósi sterkrar pantanastöðu og hagstæðrar samsetningar eftir iðnuðum og vöruflokkum gerum við ráð fyrir hærri tekjum og rekstarframlegð á komandi fjórðungum. Við stöndum við markmið okkar um 16% EBIT fyrir árslok 2023.”

Helstu tölur uppgjörsins

3Q213Q20∆ YoY As per financial statements9M219M20∆ YoY
331.9 287.2 15.6% Revenues 993.4 894.5 11.1%
123.2 112.5 9.5% Gross profit 366.2 334.0 9.6%
37.1% 39.2%   Gross profit as a % of revenues 36.9% 37.3%  
36.0 44.1 -18.4% Adjusted result from operations (Adjusted EBIT) 112.6 114.5 -1.7%
10.8% 15.4%   EBIT1 as a % of revenues 11.3% 12.8%  
48.0 55.7 -13.8% EBITDA 145.1 150.2 -3.4%
14.5% 19.4%   EBITDA as a % of revenues 14.6% 16.8%  
(4.6) (2.7) 70.4% Non-IFRS adjustments (18.1) (7.9) 129.1%
31.4 41.4 -24.2% Result from operations (EBIT) 94.5 106.6 -11.4%
9.5% 14.4%   EBIT as a % of revenues 9.5% 11.9%  
23.2 29.4 -21.1% Net result 67.7 73.5 -7.9%
7.0% 10.2%   Net result as a % of revenues 6.8% 8.2%  
360.6 282.5 27.6% Orders Received 1,101.3 914.4 20.4%
527.8 434.3   Order Book2 527.8 434.3 21.5%
             
3Q213Q20  Cash flows9M219M20 
19.7 54.1   Cash generated from operating activities, before interest & tax 157.8 178.7 
10.4 49.8   Net cash from (to) operating activities 132.6 147.2  
(12.7) (15.2)   Investing activities (65.1) (36.0)  
(18.2) (108.1)   Financing activities (85.2) (330.3)  
(20.5) (73.5)   Net cash flow (17.7) (219.1)  
             
        30/0931/12  
      Financial position20212020 
      Net Debt (Including Lease liabilities) 186.6 205.2  
      Operational working capital3 89.0 78.9  
             
      Key ratios9M219M20  
      Current ratio 1.0 1.0  
      Quick ratio 0.6 0.6  
  Return on equity4 9.3% 10.5%  
      Leverage5 0.9 0.5  
      Number of outstanding shares (millions) 754.0 747.9  
      Market capitalization in EUR billion based on exchange rate at end of period 4.6 3.2  
      Basic earnings per share in EUR cents 9.05 9.75  

1 Operating income adjusted for PPA related costs, including depreciation and amortization, and as of Q4 2020, acquisition related costs. 2 Including acquired order book of Curio and PMJ of EUR 4.2m in 1Q21. 3 Trade receivables, inventories, net contract assets & contract liabilities, trade payables. 4 Net results (annualized) / average of total equity.   5 Net debt (Including lease liabilities) / LTM EBITDA.

Fjárfesting í áframhaldandi vexti

Til að þjóna þörfum viðskiptavina Marel enn betur til framtíðar og nýta vaxtartækifæri í breytilegum markaðsaðstæðum, er gert ráð fyrir að fjárfestingar í rekstrarfjármunum aukist um sem nemur 200 punkta hækkun næstu fjögur árin.

Marel er áreiðanlegur þjónustuaðili og aukin áhersla verður lögð á sjálfvirknivæðingu og stafrænar lausnir í allri umsýslu með varahluti til að tryggja skamman afhendingartíma og sveigjanleika gagnvart breytilegri samsetningu pantanabókar.

Marel sér jafnframt tækifæri í aukinni fjárfestingu í sölu og þjónustu til viðskiptavina á vaxtarmörkuðum, fjárfestingu í þróun stafrænna lausna, hagræðingu í framleiðslu og á stoðsviðum, sem og aukinni sjálfvirkni og stafrænni þróun í framleiðslu og þjónustuneti félagsins.

Marel býður á röð fjárfestadaga Marel 360°

Fjárfestadagur Marel verður með nýju sniði í ár, en markaðsaðilum er boðið á röð viðburða sem saman gefa 360° sýn á Marel. Dagskrá Marel 360° viðburðanna samanstendur af rafrænni heimsókn í höfuðstöðvar Marel á Íslandi og hlaðvarpsþáttum með viðtölum við lykilstarfsmenn auk fjögurra netviðburða sem snúa að fjórum lykilþáttum í stefnu Marel til framtíðar. Fjallað verður um Marel sem vaxtarfyrirtæki, einstakt sölu- og þjónustunet félagins um heim allan, nýjungar í hugbúnaðarlausnum og aukna áherslu á sjálfbærni í matvælaframleiðslu og rekstri félagsins.

Viðburðirnir munu hefjast kl. 14:00 og standa yfir í allt að 90 mínútur hver um sig. Fjölbreytt úrval fyrirlesara og pallborðsumræður verða í beinni útsendingu svo ekki gleyma að taka frá dagana:

  • 7. október: Rafræn heimsókn í Marel á Íslandi (upptaka aðgengileg á marel.com/ir)
  • 11. nóvember: Vöxtur (e. growth)
  • 18. nóvember: Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet (e. global reach)
  • 2. desember: Stafrænt ferðalag (e. digitalization)
  • 9. desember: Sjálfbærni (e. sustainability)

Horfur

Markaðsaðstæður hafa verið krefjandi í ljósi umróts á heimsmörkuðum og yfirstandandi COVID-19 heimsfaraldurs. Marel býr að góðri dreifingu tekna á milli markaða og iðnaða í gegnum alþjóðlegt sölu- og þjónustunet sitt ásamt breiðu og framsæknu vöru- og þjónustuframboði. Sem stendur er ekki vitað hver fjárhagsleg áhrif COVID-19 munu verða á Marel.

Marel stendur við vaxtarmarkmið sín til meðallangs- og langs tíma.

Marel stefnir að um 40% framlegð (e. gross profit), 18% sölu-, markaðs- og stjórnunarkostnaði og 6% þróunarkostnaði, til meðallangs tíma.

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

  • Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
  • Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.

Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Deila: