
Ágætis afli hjá Gullver
Í gær var landað úr ísfisktogaranum Gullver NS á Seyðisfirði. Skipið kom til hafnar aðfaranótt laugardags en vegna páskahátíðarinnar var beðið með löndunina. Skipstjóri í veiðiferðinni var Þórhallur Jónsson og segir hann að hún hafi gengið vel.
„Aflinn var um 116 tonn og fékkst hann á fjórum sólarhringum eða svo. Uppistaða aflans var þorskur. Við vorum að veiðum í Hvalbakshallinu í ágætis veðri og vorum komnir til hafnar fyrir páskahretið,“ segir Þórhallur í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Gullver hélt til veiða á ný í gærkvöldi.
Tengdar færslur
Formennsku LHG í ACGF lokið
Tveggja ára formennsku Landhelgisgæslu Íslands í samtökum strandgæslna á norðurslóðum lauk á fjarfundi á föstudag. Strandgæslu...
Arctic Fish flytur í gamla Pólshúsið
Arctic Fish ehf. hefur tekið allt húsnæði að Sindragötu 10 á leigu til næstu ára. Fyrirtækið mun flytja þangað skrifstofur sín...
LS semur við Morenot
Landssamband smábátaeigenda hefur gert samning við Morenot (Sjóvélar) um afslátt til félagsmanna á vörum í netverslun fyrirtækis...