Akraneskaupstaður og Brim stofna þróunarfélag

111
Deila:

Akraneskaupstaður og Brim hafa tekið höndum saman og stofnað sameiginlegt þróunarfélag. Undirbúningur hefur staðið frá síðastliðnu hausti, þar sem KPMG ráðgjöf hefur leitt vinnuna með þátttöku íbúa og ýmissa hagaðila. Niðurstaðan er stofnun þróunarfélags um atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Breið á Akranesi samkvæmt frétt frá Brimi.

Gert er ráð fyrir áfangaskiptri uppbyggingu til langs tíma þar sem lagt verður upp með uppbyggingu í ferðaþjónustu, heilsu og hátækni. Félaginu er ætlað að efla atvinnutækifæri, nýsköpun og skapandi greinar á svæðinu og þá er gert ráð fyrir nýrri íbúabyggð á Breið.

Brim og Akraneskaupstaður eiga meirihluta lóða og fasteigna á Breið þar sem liggja einstök tækifæri til uppbyggingar.
Markmið aðila er að skapa umhverfi þar sem miðlun ólíkrar þekkingar á sviði tækni, lýðheilsu og umhverfismála muni stuðla að rannsóknum og nýsköpun í fremstu röð sem muni leysa úr ólíkum áskorunum og vandamálum sem að heiminum steðja.

Framkvæmdastjóri félagsins er Valdís Fjölnisdóttir og í stjórn sitja: Gísli Gíslason, starfandi stjórnarformaður, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verndari verkefnisins

Í tilefni af stofnun félagsins hefur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tekið að sér að vera sérlegur verndari verkefnisins og skrifað undir viljayfirlýsingu um fyrsta verkefni þróunarfélagsins um stofnun rannsóknar- og nýsköpunarseturs auk samvinnurýmis á Breið.

„Við þurfum að hlúa að nýsköpun og leggja okkur fram um að skapa henni umhverfi þar sem miðlun ólíkrar þekkingar og sköpun geta blómstrað. Með þessari viljayfirlýsingu eru stigin stór skref fyrir nýsköpunarumhverfið og atvinnulífið á Vesturlandi og ekki síst fyrir markmiðin um störf án staðsetningar. Það er mér sannur heiður að fá að vera verndari verkefnisins,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Auk Þórdísar hafa eftirfarandi aðilar lýst yfir vilja sínum til að eiga samstarf um að á Akranesi byggist upp nýsköpunar- og rannsóknarsetur auk samvinnurýmis. Þar verður áhersla lögð á þróun og hátækni í tengslum við atvinnulíf á Vesturlandi, á sviði rannsókna, sjávarútvegs, snjalltækni, landbúnaðar, orkufreks iðnaðar, heilbrigðis- og ferðaþjónustu og skapandi greina.

 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Akraneskaupstaður
 Álklasinn Breið Þróunarfélag
 Brim Coworking Akranes
 Fasteignafélagið Hús ehf. Faxaflóahafnir
 Fjölbrautaskóli Vesturlands – FVA Háskólinn á Bifröst
 Háskóli Íslands Heilbrigðisstofnun Vesturlands – HVE
 Landbúnaðarháskóli Íslands Matís
 Samtök Sveitafélaga á Vesturlandi – SSV Skaginn 3X
 Þróunarfélagið á Grundartanga

 

Rannsóknar- og nýsköpunarsetur

Byggt verði upp rannsóknar- og nýsköpunarsetur, aðstaða sem býður upp á lifandi starfsemi og innblástur til skapandi lausna þvert á greinar. Stafræn smiðja (Fab Lab) verður komið fyrir í húsnæði sem gerir frumkvöðlum kleift að vinna saman að hönnun og útfærslu hugmynda. Þá verður samstarf við lykil atvinnugreinar og öflug fyrirtæki um rannsóknir og nýsköpun í snjallvæðingu í samstarfi við skóla landsins.
Áhersla á rannsóknir á hafinu og nýsköpun hefur aldrei verið mikilvægari. Miklar umhverfisbreytingar eiga sér stað og áríðandi er að efla grunnrannsóknir, m.a. á umhverfisbreytingum eins og súrnun sjávar.

Samvinnurými – fjarvinnuaðstaða

Komið verði upp aðstöðu á Breið á Akranesi – aðlaðandi og lifandi samvinnuvinnurými, þar sem heimamenn og aðrir geti stundað fjarvinnu frá vinnustað að hluta eða öllu leyti. Ráðuneyti og opinberar stofnanir nýti samvinnurými á Breið til að styðja við framkvæmd stefnumarkandi byggðaáætlunar um „Störf án staðsetningar“.

Á næstunni verður efnt til hugmyndasamkeppni um nafn á setrinu auk þess sem opinn dagur verður síðar í sumar þar sem öllum gefst kostur á að skoða húsnæðið. Reynslan sem fæst af verkefninu ætti að geta haft yfirfærslugildi fyrir önnur svæði á landinu sem mörg hver búa við breyttar aðstæður í atvinnuháttum.

 

Deila: