Ánægja með sölu Gildis í HB Granda

Deila:

Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur (S.V.G) lýsir yfir ánægju með að stjórn Gildis -lífeyrissjóðs hafi tekið ákvörðun  um að selja skuli öll hlutabréf sjóðsins í H.B Granda nú Brim h/f.

„Á sjóðsfélagafundi Gildis þann 24. nóvember 2018 lagði Einar H. Harðarson formaður S.V.G ,  fram tillögu þess efnis , tillagan var ígrunduð á vantrausti á  H.B Granda í ljósi viðskiptafléttu fyrirtækisins  sem gæti skaðað m.a launarétt sjómanna .

Stjórn S.V.G vill koma á framfæri þakklæti til stjórnar Gildis fyrir hönd stærsta sjómannafélags landsins,“ segir í frétt frá félaginu.

 

Deila: