Andri Viðar áfram varaformaður LS

121
Deila:

Á fundi stjórnar LS sem haldinn var í kjölfar aðalfundar var Andri Viðar Víglundsson endurkjörinn varaformaður félagsins. Stjórn LS er lítilleg breytt.  Halldór Ármannsson fv. formaður LS tekur nú aftur sæti í stjórninni, en hann var kjörinn formaður Reykjaness á aðalfundi félagsins þann 30. október sl.  Halldór tók við af Eyþóri Reynisson sem verið hefur formaður félagins sl. 3 ár og í stjórn LS til jafnlangs tíma.

Andri Viðar

Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur var haldinn 21. maí sl. Fundurinn var ígildi tveggja funda þar sem ekki reyndist unnt að koma saman á árinu 2020 vegna Covid.  Á fundinum bar það helst til tíðinda að Þorvaldur Gunnlaugsson sem verið hefur formaður Smábátafélags Reykjavíkur og stjórnarmaður í LS sl. 10 ár baðst lausnar.  Finnur Sveinbjörnsson bauð sig fram sem formann og var kosinn með lófaklappi.  

Auk Finns og Halldórs kemur Karl Heimir Einarsson formaður Hrollaugs nýr inn í stjórn Landssambands smábátaeigenda.

Deila: