Arctic Sea Farm fær aukið leyfi í Dýrafirði

109
Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm hf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Dýrafirði í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 8. janúar 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. febrúar 2021.

Arctic Sea Farm sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonnum af laxi í Dýrafirði. Fyrirtækið er fyrir með 4.000 tonna rekstrarleyfi (FE-1123) fyrir sjókvíeldi á laxi og regnbogasilungi í Dýrafirði. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 20. maí 2019 og mun rekstrarleyfi FE-1123 falla niður við gildistöku nýs leyfis.

Hámarkslífmassi eldisins vegna rekstrarleyfi FE-1161 í Dýrafirði mun ekki fara yfir 10.000 tonn sem er í samræmi við burðarþolsmat Dýrafjarðar. Tekið var tillit til áhættumats Hafrannsóknastofnunar við útgáfu rekstrarleyfisins. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: