Árshátíð aflýst, út að borða í staðinn

212
Deila:

Árshátíð Vinnslustöðvarinnar er aflýst vegna veirufaraldursins. Samkoman hefði að öllu eðlilegu verið núna í október með annáluðum glæsibrag; dýrindis mat, skemmtiatriðum, dansi og herlegheitum í góðum félagsskap – allt í boði fyrirtækisins handa starfsmönnum og mökum þeirra.

Skarðið sem árshátíðin skilur eftir sig í ár verður auðvitað ekki fyllt en svona gerist á síðustu og verstu farsóttartímum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Vinnslustöðin færir hverjum starfsmanni sínum ávísun upp á tíu þúsund krónur og með henni er hægt að greiða fyrir mat á þremur veitingastöðum í Eyjum: Einsa kalda, Gott eða Tanganum.

Vinnslustöðin býður þannig starfsmönnum sínum út að borða í sárabótarskyni en hvetur þá jafnframt til þess að fara ekki saman í stórum hópum og ganga hægt um gleðinnar dyr.

„Við höfum fengið ótrúlega jákvæð og góð viðbrögð frá starfsmönnum og reyndar í bæjarfélaginu yfirleitt. Fólk er afar þakklátt fyrir ákvörðun fyrirtækisins og skilur vel að ekki er mögulegt að efna til árshátíðar í ástandinu sem ríkir því miður í þjóðfélaginu um þessar mundir,“  segir Lilja Björg Arngrímsdóttir sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar.

Upprifjun til huggunar: árshátíðin 2017

Enn meiri huggun: árshátíðin 2018

Addi í London tók myndirnar 2017 en þær tóku sig sjálfar 2018, öllum gjörsamlega að óvörum.

 

 

Deila: