Auglýsa leyfi til hrefnuveiða

Deila:

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur nú sent frá sér auglýsingu um veitingu leyfa til hrefnuveiða næstu fjögur ár. Með auglýsingu þessari vill ráðuneytið gefa aðilum kost á að sækja um leyfi til hrefnuveiða en skilyrði fyrir veitingu leyfanna koma fram í reglugerð nr. 163, 30. maí 1973, um hvalveiðar, með síðari breytingum.

Skilyrði fyrir veitingu leyfa til hrefnuveiða eru eftirfarandi:

  1. Að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum. Við mat á því hvort aðili hafi reynslu af hrefnuveiðum er sú krafa gerð að aðili hafi a.m.k. verið samfellt í þrjá mánuði skytta á hrefnuveiðibát. Heimilt er Fiskistofu að meta jafngilda annarskonar reynslu eða þekkingu svo að hún fullnægi áskilnaði skv. þessari grein.
  2. Skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra skulu hafa sótt viðurkennt námskeið í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.

Þá er kveðið á um veiðiaðferðir og veiðibúnað sem skip sem ætluð eru til hrefnuveiða skulu vera búin í ofangreindri reglugerð um hvalveiðar með síðari breytingum.

Ráðuneytið bendir jafnframt á að ákveða skal gjald fyrir hvert leyfi til að standa straum af kostnaði vegna eftirlits með hvalveiðum sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um hvalveiðar nr. 26/1949.

Umsóknir um leyfi til hrefnuveiða skulu sendar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.

 

Deila: