Auglýst eftir tilboði í aflamark

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki í kolmunna og norsk-íslenskri síld fyrir þorsk. Í boði eru 12.773 tonn af kolmunna og 5.415 tonn af síld.

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 152,61 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn er þegar opin og ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Almennt gildir við innsetningu á tölum í Ugganum að ekki skal nota punkta og kommur. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Deila: