Auglýst eftir umsóknum um selveiðar

204
Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2021. Fiskistofa vísar til reglugerðar um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um bann við veiði á öllum selategundum.

Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.

Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2020.

 

Deila: