Auglýst eftir umsóknum um styrki

174
Deila:

Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna sem styðja við markmið sjóðsins um lágmörkun umhverfisáhrifa af völdum sjókvíaeldis, samkvæmt reglugerð nr. 874/2019.

Umhverfissjóður sjókvíaeldis starfar samkvæmt lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, og er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Samkvæmt reglugerð nr. 874/2019 um Umhverfissjóð sjókvíaeldis skal stjórn sjóðsins taka ákvörðun um forgangsröðun verkefna við úthlutun hvers árs. Við mat á umsóknum við úthlutun árið 2021 munu njóta forgangs rannsóknarverkefni á laxalús, kynlausum eldisfiskum (genaþöggun) og orkuskiptum í sjókvíaeldi. Eftir sem áður styrkir sjóðurinn verkefni á sviði burðarþolsmats og vöktunar.

Stofnanir, fiskeldisfyrirtæki, einstaklingar og lögaðilar geta sótt um styrki til sjóðsins.

Umsóknarfrestur er til klukkan 16:00, 28. maí 2021

Umsóknum er skilað rafrænt.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir þann 28. apríl 2021 á eyðublaðavef stjórnarráðsins

 

Deila: