„Bæta verður við viðmunaralfa“

Deila:

Heildarafli strandveiðibáta er kominn í 8.464 tonn þar af er þorskur 7.415 tonn.  Þó tímabilið sé aðeins hálfnað í mánuðum talið er ljóst að flest meðaltöl eru hærri en áður hefur sést.  Alls hafa 684 bátar landað afla á móti 634 á sama tíma í fyrra.  Útgefin leyfi til strandveiða eru komin yfir sjöhundruð – 703 talsins.

Á þeim tveimur mánuðum sem liðnir eru af strandveiðitímabilinu hafa 95 bátar náð að nýta 24 daga.  Þessu var ekki til að dreifa á síðasta sumri þegar 27 bátar náðu sömu nýtingu.  Segir það allt til um hversu veðrið spilar stóran þátt í sókn þessara báta.  Þegar litið er til síðustu tveggja vikna var þorskafli á hvern dag 157 tonn að meðaltali [20. – 23.] en fór í 279 tonn í síðustu viku.

Augljóst er að bæta verður við viðmiðunarafla svo kerfið haldi, þ.e. 12 dagar í júlí og 12 í ágúst.  Hversu miklu verður bætt við er enn óvíst, en fyrir liggur að 874 tonn af þorski fengust í skiptum fyrir 6.952 tonn af makríl á tilboðsmarkaði Fiskistofu.

Sjá nánar tölur um strandveiðar.

 

Deila: